Tilkynning – vinningar SjallyPally25! 🤝✍️
Þetta mót er það stærsta sem haldið hefur verið á Íslandi með 224 keppendur og vinninga að verðmæti 3.000.000.- ISK!
Verðlaunafé sem skiptist á efstu 16 karla og efstu 8 konur er að fjárhæð 1.200.000, en hægt er að skoða sundurliðun á mynd hér að neðan.

Þökkum okkar styrktaraðilum fyrir!
Hlökkum til að taka á móti öllum keppendum í Sjallanum fyrstu helgina í apríl. Þetta verður Epic! 🎯🎯
Við minnum þá keppendur sem þurfa að afskrá sig að senda póst á pila@thorsport.is þess efnis. Það bíða 30 karlar á biðlista og 1 kona eftir tækifærinu að taka þátt í SjallyPally25
Miðasala á lokakvöldið er í fullum gangi á tix.is – https://tix.is/event/19189/sjally-pally-lokakvold
Uppselt er á neðri hæðina en eitthvað til af miðum á svalir, bæði sitjandi og standandi.
SjallyPally25! 💥💥