Home » Akureyri Open 2026 – Tilkynning

Akureyri Open 2026 – Tilkynning

by AddiMinn


SjallyPally 2026 / 10-11. apríl!


Miðasala fyrir keppendur á lokakvöldið hefst á morgun (fimmtudag) kl 12:00 hjá Tix (www.tix.is). Tölvupóstur fer á keppendur með slóð á viðburðinn.

Almenn miðasala hefst svo á föstudag kl 12:00 og verður þá hægt að tyggja sér miða hér: Lokakvöld
Það er búið að teikna Sjallann upp á TIX.IS svo þið þurfið að vera klár í að velja ykkur sæti!

Það verða sjónvörp útum allt á neðri hæð og efri hæð svo fólk sjái allt sem gerist á sviði. Sum sæti gulltryggja ekki að sjáist alltaf 100% á svið – en stemningin í salnum hefur toppað það hingað til.

Fyrirkomulag mótsins;
Riðlar fyrir keppendur verða birtir næsta föstudag.

Keppni hefst á föstudeginum 10 apríl verður tvískipt, helmingur af riðlum KK og KVK keppa kl 14:00 og seinni helmingur kl 18:00.

Riðlar eru birtir þetta tímanlega svo keppendur geti gert ráðstafanir, hvort þeir byrji að spila kl 14:00 eða 18:00. Ekki verður hægt að gera breytingar á riðlum eftir að þeir hafa verið opinberaðir.

Útsláttur hefst kl 10:00 á laugardag.

Í karlaflokki verða 32 riðlar og 7 keppendur í hverjum riðli. Efstu 5 keppendur fara áfram í A keppni og neðstu tvö sætin fara í forsetabikar.

Í kvennaflokki verða 8 riðlar og 5 keppendur í hverjum riðli. Efstu 4 keppendur fara áfram uppúr riðli.

Á stóra sviðinu fara fram leikir í 8 manna úrslitum í karlaflokki, undanúrslit í karlaflokki og úrslitaleikur karla og kvenna. Sjallinn opnar kl 18:00 og keppni hefst kl 19:00.

#SjallyPally26

You may also like