Home Fréttir Akureyri Open 2025 – skráning hefst laugardaginn 1.febrúar

Akureyri Open 2025 – skráning hefst laugardaginn 1.febrúar

by AddiMinn

Stærsta pílumót Íslands fer fram helgina 4. – 5. apríl þegar Akureyri Open 2025 verður haldið í Sjallanum. 

Sjally Pally 2025!

Það verður öllu til tjaldað þessa helgi í Sjallanum og andrúmsloftið verður engu líkt. Fjöldi keppenda verður 160; 128 karlar og 32 konur. Það er ljóst að eftirspurn eftir þátttöku í mótið verður gríðarleg og því hvetjum við þá aðila sem hafa áhuga á að taka þátt að vera tilbúin að skrá sig.

Skráning hefst laugardaginn 1. febrúar kl 12:00 á facebook síðu Píludeildar Þórs.

Mótið í ár verður hið glæsilegasta. Frægasti dómari og kallari í pílukasti, Russ Bray, verður á staðnum og mun sjá um að kalla úrslitakvöldið sem verður á laugardagskvöldið fyrir fullum sal af fólki. Þetta er eitthvað sem enginn á að láta framhjá sér fara! Þátttökugjaldið í mótið er 10.000kr en innifalið í þátttökugjaldinu er miði á úrslitakvöldið en almenn miðasala á úrslitakvöldið fer fram á www.tix.is þegar nær dregur.

Keppni hefst föstudaginn 4. apríl kl 18:00 en keppt verður í riðlum og svo útslætti. Á laugardag hefst svo keppni aftur kl 10:00 og verða riðlar kláraðir og útsláttur hefst í framhaldinu. Á laugardagskvöldið verður Sjallanum breytt í SjallyPally og stemningin sett í fimmta gír. Átta manna úrslit hjá körlum, undanúrslit hjá körlum og úrslitaleikir karla og kvenna verða á stóra sviðinu. Það verður ljósashow, inngöngulög, fjöldinn allur af myndavélum,  risaskjáir sem sýna frá leikjunum í salnum ásamt fleiri skemmtilegum nýjungum frá fyrra ári. Mótinu verður svo streymt fyrir þá sem komast ekki í stemninguna.

Verðmæti vinninga verður 1.500.000.-! Það er því til mikils að vinna! Hér er slóð á viðburðinn á Facebook

Fyrir áhugasama er hægt að sjá streymi hér frá því í fyrra en mótinu var streymt á Youtube í samstarfi við LiveDartsIceland. 

Hér er svo hægt að sjá úrslitaleikinn á milli Dilyan Kolev og Matthíasar.

Sjáumst í Sjallanum 4. – 5 apríl!

You may also like