Akureyri Open – SjallyPally 2026 – var haldið um liðna helgi í Sjallanum
Við viljum byrja á að þakka öllum keppendum SjallyPally kærlega fyrir helgina – mótið fór virkilega vel fram. Allir voru mættir til að kasta pílum og skemmta sér!
Skráning í mótið hófst 1. febrúar síðastliðin og fylltist í mótið á innan við 60 sekúndum – í heildina skráðu sig tæplega 400 keppendur og því var biðlistinn nokkuð langur. Fjölmennasta Akureyri Open frá upphafi, 264 keppendur, þarf af 224 karla og 40 konur.

Miðasala á úrslitakvöldið í Sjallanum hófst viku áður en mótið hófst og varð uppselt á mjög skömmum tíma.
Í karlaflokki var keppt í 32 riðlum og voru 7 keppendur í hverjum riðli. Í kvennaflokki var spilað í 8 riðlum og voru 5 keppendur í hverjum riðli.
Efstu 5 keppendur í karlaflokki fóru áfram í A úrslit og allir keppendur í kvennaflokki fóru áfram uppúr riðli. Neðstu tvö sætin í karlaflokki fóru í forsetabikar.

Riðlakeppni lauk á föstudagskvöld og hófst útsláttur kl 10:00 á laugardagsmorgun. Andrúmsloftið var rafmagnað af spennu í leikjum í 16 manna úrslitum karla og undanúrslitum á laugardeginum en sigurvegari þar tryggði sér sæti á stóra sviðinu á laugardagskvöldið. Mikill fjöldi mætti í Sjallann til að fylgjast með leikjunum.

Streymt var í þráðbeinni útsendingu á Youtube síðu LiveDartsIceland og á vísir.is. Áhorfið á viðburðinn var til fyrirmyndar en yfir 7.000 manns fygldust með viðburðinum í beinu streymi.
Hægt er að horfa aftur hér, við mælum með því:
Þeir leikir sem fóru fram á stóra sviðinu í Sjallanum:
Karlaflokkur
- Alexander Veigar vs Halli Egils
- Björn Leon vs Halli Birgis
- Jón Ragnar vs Matthías Örn
- Vitor Charrua vs Viddi Vald
Kvennaflokkur:
- Hrefna Gerður vs Brynja Herborg
Uppselt var í Sjallann og rífandi stemning allt kvöldið.

Í karlaflokki mættust Björn Leon og Vitor Charrua í úrslitum. Björn Leon hafði betur 5-2 og tryggði sér þar með sigur í SjallyPally 2026 og 500.000kr verðlaunafé.
Í kvennaflokki var það Hrefna Gerður og Brynja Herborg sem mættust í úrslitum og var það Brynja Herborg sem vann 4-2 og tryggði sér sigur í SjallyPally 2026 og 250.000kr í verðlaunafé.

Í forsetabikar karla sem var spilaður á laugardeginum voru 64 keppendur. Í úrslitum mættust Jón Kristján frá píludeild Þórs og Bogi Adolfsson. Það var Jón Kristján sem hafði betur 3-1 og vann forsetabikar á SjallyPally 2026!

Góðgerðarleikur SjallyPally – fyrir hvert 180’s safnaðist 5.000kr sem rennur allt til Hetjanna, félags langveikra barna á Norðurlandi. Fjöldi 180’s í mótinu í ár voru 144. Í heildina safnaðist 720.000kr sem rennur allt í góðgerðarmál. Vel gert keppendur!
Þökkum styrktaraðilum leiksins sérstaklega fyrir: Tengir, Forest Lagoon, Eyjabiti og CCEP!
Við óskum öllum sigurvegurum til hamingju með sigurinn og jafnframt öllum keppendum sem mættu til leiks í SjallyPally!
Hér er hægt að sjá myndir frá mótinu sem Axel Þórhallsson tók – þökkum honum fyrir!
Að lokum viljum við innilega þakka öllum styrktaraðilum og sjálfboðaliðum mótsins – án ykkar væri þetta ekki hægt.

Við hlökkum til SjallyPally 2027 – það verður gaman!