Sjallinn opnar kl 12:00 á morgun. Keppendur þurfa að mæta a.m.k. 45 mín áður en keppni hefst. Í anddyrinu í Sjallanum skrá keppendur sig til leiks ásamt því að fá armbönd. Fyrir keppendur sem eru í seinna hollinu kl 18:00 gildir það sama, mæting a.m.k. 45 mín áður en keppni hefst.
Á morgun, föstudag, verður riðlakeppni kláruð…..
Í karlaflokki verður keppt í 32 riðlum og eru 7 keppendur í hverjum riðli. Efstu 5 keppendur fara áfram í A keppni og neðstu tvö sætin fara í forsetabikar.
Í kvennaflokki verður keppt í 8 riðlum og eru 5 keppendur í hverjum riðli. Allir keppendur fara áfram í A keppni.
Karlaflokkur: Riðlar AA – AP – hefja leik kl 14:00 Riðlar AQ – BF – hefja leik kl 18:00
Kvennaflokkur Riðlar A – D – hefja leik kl 14:00 Riðlar E – H – hefja leik kl 18:00
Útsláttur hefst kl 10:00 á laugardagsmorgun í A keppni karla og kvenna. Útsláttur í forsetabikar hefst kl 12:00.
Til að allt gangi hratt og vel fyrir sig þá er gott að kynna sér staðsetningu spjalda.
Þegar gengið er inn á jarðhæð í Sjallanum, eru tröppur á vinstri hönd sem liggja upp á miðhæð en þar má finna spjöld 1-18.

Ef gengið upp um eina hæð í viðbót eru svalir á vinstri hönd og síðan Dátinn á hægri hönd.
Spjöld 19-26 eru á svölunum,

Á Dátanum eru síðan spjöld 27-36
